„Leyndir kraftar hins illa gera fólki kleift að fara lengra en villtustu draumar ná." (Eugen Kogon.) Það er ekki óþekkt að fólk ákveði að binda enda á líf sitt ásamt því að taka líf annarra. Hvað veldur er erfitt að segja. Fyrir flest okkar er erfitt, ef ekki ómögulegt að skilja þetta. Í mörgum tilfellum er um það að ræða að foreldrar taka líf barna sinna og síðan sitt eigið líf. Þess konar atburðir gerast oft í trúarhópum. Líka hefur komið fyrir að ungt fólk hafi gert það sama. Það mál sem nú verður sagt frá snýst ekki um trú heldur um það hvernig maður reynir á afar skipulagðan hátt að koma eiginkonu sinni fyrir kattarnef. Hann sannfærir konuna um að þau muni bæði deyja til að fara í nýja vídd þar sem ekkert illt fyrirfinnst.
Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.Book details
-
Publisher
-
Language
Icelandic -
Publication date
-
Read by
-
Theme
-
Collection