PJ Masks - Til í tuskið!
PJ Masks - Til í tuskið!

PJ Masks - Til í tuskið!

Hver hefur stolið öllum æfingabúnaðinum úr íþróttaskúrnum? Og hvað er eiginlega þessi dularfulli hvíti bolti sem gleypir í sig öll leikföngin? Catboy, Owlette og Gekko verða að beita öllum brögðum til þess að finna þjófana en það kemur í ljós að þetta eru illmenni sem þau hafa hitt áður! Mun PJ Masks takast að vinna saman til þess að bjarga deginum?

Komdu með Catboy, Gekko og Owlette í ofurhetjuævintýri! Sigldu inn í nóttina í kattarbílnum, uglufauginni eða gekkóbílnum til þess að koma í veg fyrir Romeo, Luna Girl, Night Ninja, Úlfakrakkana og öll hin illmennin frá því að taka yfir borgina. Háttatíminn er rétti tíminn til þess að berjast gegn glæpum. Klæddu þig í náttfötin og farðu út í nóttina til þess að bjarga deginum, PJ Masks sýna þér hvernig. Það er tími til þess að vera hetja!

PJ Masks var upprunalega sería í franskri myndabók. Serían öðlaðist vinsældir á heimsvísu þegar hún var sýnd í sjónvarpi árið 2015. Í hinum vinsælu Netflix og Disney seríum, fylgjumst við með Amaya, Connor og Greg sem eiga öll töfra náttföt sem geta breytt þeim í ofurhetjur á nóttinni. Amaya verður Owlette, Connor verður Catboy og Greg verður Gekko. Þegar nóttin skellur á, taka þau sig saman til þess að berjast á móti óvinum sínum Romeo, Luna Girl, Night Ninja, Úlfakrökkunum, Motsuki, Octobella, Pharaoh Boy og Munku-Gu til þess að bjarga borginni. PJ Masks geta gert allt með ofurkröftum sínum, ofurkattarendum, ofuruglufjöðrum og ofurgekkóskildum, en að lokum er öflugasta vopn þeirra alltaf vináttan og samvinnan. Serían hjálpar börnum að sigrast á næturkvíða og kennir gildi þess að vera góð manneskja. PJ Masks™ og tilheyrandi vörumerki eru í eigu eOne/Hasbro og eru notuð með leyfi Hasbro. © 2021 Hasbro

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like