Á skrifborði skáldsins takast penninn og blekbyttan á. Ágreiningsefnið er hvort þeirra eigi stærri þátt í sköpun eiganda síns. Blekbyttan stendur á því að öll þau undur sem penninn færi á blaðið séu sótt í hennar dimmbláu djúp. Penninn hinsvegar vill ekki láta gera lítið úr sinni milligöngu í málinu, enda sé það hann sem færi hugmyndirnar í letur, með hjálp styrkrar handar síns skáldlega bróður.
Um þetta þræta þau uns skáldið sjálft skilar sér heim. Það hefur þá verið á undursamlegum fiðlutónleikum og er sannarlega uppnumið. Í hrifnæmisástandi sínu sest það niður og skrifar sína eigin hugleiðingu um sköpunina og hinn raunverulega meistara hennar. En niðurstaðan er hvorki pennanum né blekbyttunni í hag.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.Détails du livre
-
Éditeur
-
Langue
Islandais -
Date de publication
-
Nombre de pages
25 -
Traducteur
-
Thème
-
Collection
-
Public